Telma
Benný sæta
02.09.2007 16:31:18 / telma

Sumarfríið mitt :D

úff það var svo gott að hafa fengið tvær vikur í sumarfrí, ég og Helgi fórum til DK ásamt hafsteini, kristjáni og steina :lol: við fórum á þrið.nótt og komum um sex leytið á mið. Ég og Helgi fórum beint til kristínar og Kormáks og strákarnir upp á hótel, við lögðum okkur til hádegis svo var lagt af stað niðrí bæ, byrjuðum á að fá okkur að borða, fórum svo í tívolíið og vorum þar mest allan daginn. Fengum frábært veður allan daginn en svo kom biluð rigning sem mér fannst geðveikt því ég elska rigningu. það var enginn sammála mér hehehe. :haha: en já við vorum allan tímann úti að njóta sofa frammeftir og slaka á. Við fórum að versla og í dýragarðinn sem var geðveikt :lol:  við ætluðum í carlsberg verksmiðjuna en við snillingarnir komum 5 min fyrir lokun hehehe en já þetta var frábær ferð þó ég hafi ekki djammað mikið en ég og Helgi skemmtum okkur konunglega. Ég held að strákarnir hafi gert það líka þó við höfðum ekki djammað með þeim :$  

Jámm svo er maður bara komin í vinnunna sem er fínt. ég er svo að fara með gunnhildi og steinunni í ræktinna þær ætla drulla mér að vera dugleg í ræktinni 8|  ég veit að ég er ekkert sérstaklega dugleg að haldamig við að hreyfa mig.  

Segjum þetta gott í bili 

Kv. Telma  


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 18:04:35 / telma

Danmörk þann 22 ágúst

Á föst fórum við kristín og gunnhildur út að borða á ítalíu fengum okkur pasta hjá henni sætu ragnheiði og fórum svo í pool með strákunum. Steina, hafsteini og júlla :o svo á laugardeginum var kveðjupartý hjá kristínu og kormáki. Það voru frekar margir í partýinu. En ég og Lára fórum á kostum á dansgólfinu takandi tinu turner og fleiri move heheheh

Já svo fara þau skötuhjú til copenhavn á fimt. En við komum til þeirra þann 22 ágúst svo það verður ekki langur aðskilnaður hehehehe  ég og Helgi og Kristján, Steini og Hafsteinn förum í skemmtilega hópferð :D Hlakk bilað til að komast í sumarfrí og slaka á 8|

Var búin að gera lengri færslu en nei hún strokaðsit út :evil:

Segji þetta gott í bili dúllurnar mínar :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 16:27:50 / telma

Átak án þess að tala um það (nema nottla hérna)

Já ég ætla að koma mér í form án þess að ræða það við nokkurn nema hér ég er nefnilega búin að segja þetta svo oft að fólk er komið með leið á því. eða Helgi er komin með leið á því. ég ætla að byrja í dag á því  að fara í ræktina þegar ég er búin að vinna svo í ræktina á morgun. Ég ætla svo að reyna fara reglulega í ræktina og svo fara skipuleggja matarræðið mitt hægt og rólega.

ég er ekki að að segja að ég sé feit :evil:heldur langar mig að komast í form áður en ég verð ólétt sem gerist vonandi á næstu mánuðum.  Ég er búin að segja við marga að ég er sátt við sjálfa mig hvernig ég er, ég er það en mig langar að líta betur út vera semsagt flottari helduru en ég er núna.:lol:

ok nú á ég bara eftir að fá að heyra OMG hvað þú ert sjálfselsk, já  ég elska sjálfan mig það segja allir að til að elska verður maður að byrja á að elska skjálfan sig sem ég geri, svo fólk sem hefur eitthvað ljótt um þetta að segja má sleppa því :o 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 14:35:12 / telma

Loksins komin aftur :D

Jámm mins langar að halda áfram að blogga þó að fáir lesi bloggið mitt. En það sem er frétta af mér að ég vinn hjá flugfélag íslands, svo er ekkert svosum mikið að frétta en það :D

ég kem með skemmtilega færsls næst:D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 17:42:58 / telma

Kristín Frænka er æðisleg :)

ÉG var að fá símtal áðan frá Kristínu frænku sem er ein af uppáhaldsfrænkum mínum alveg topp 5 :lol:  hún já hringdi og sagðist ætla að bjóða mér til rvk um helgina svo ég komist í fertugs afmælið hennar sem ég hlakka mjög mikið til, þannig ég er pottþétt að koma til rvk. vúhhúuúú´ ég hlakka feitt til kv. Telma

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 17:06:41 / telma

Helgin

Ég fór suður um helgina því hún móðir mín átti afmæli og Sara sæta að skíra litlu sætu Unu Björg. Ég fékk að fara kl. 13.00 úr vinunni svo ég gæti verið komin snemma suður, ég fer heim og tek mig til og Helgi fer með bílinn í smurningu :) Helgi kemur svo og nær í mig en kemur með afmælisgjöfina mína sem er svona ekta myndavél Canon 350d ég gjörsamlega missti mig úr gleði :D þetta er samt líka afmælisgjöfin hans frá mér, Helgi er svo mikið æði ;) svo lögðum við af stað með flottu myndavélina okkar, ég tók svona 400 myndir alla helgina :lol: svo þegar við vorum komin í bæinn skutlar Helgi mér heim til mömmu og hann fer að hitta vini sína. Mamma var búin að panta borð á Thorvaldsen og vinkonur hennar komu með. ég var síðan að fara hitta Gunnhildi en gleymsi óvart símanum mínum heima en ég á sem betur fer svo góðan bróðir sem kom með símann fyrir mig svo þegar ég hringi í hana þá var hún tvo tíma á leiðinni því hún þurfti að vesenast en því miður á meðan fékk ég svo mikið krampakast í magan að ég varð að fara heim og fara sofa svo á laugardeginum þá fór ég í mat til tengdó og fékk svaða fína steik og sveppasósu sem var æði, svo var haldið til Gunnhildar að hitta stelpurnar, Eyrúnu og Tinnu.og nottla Gunnhildur nema ég fékk aftur krampakast og gat ekkert djammað en ég var samt hörð og fór í bæinn með Gunnhildi og Tinnu, Hún Eyrún nennti ekki og fór heim. það var mjög fínt í bænum fyrir utan að vera drepast í maganum. Á sunnudeginum fórum við í kringluna að versla bol  á Helga og fórum svo í Skírn til Söru og Ingvars, Litla skvísan þeirra Una Björg er orðin svo stór maður bara trúir því ekki hún er 4 mánaða algjör dúlla og ótrúlega falleg :) ég segi þetta gott það les hvort eðer engin eða kommentar svo ef þið lesið þá plís kommenta :) Kv. Telma

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 17:20:27 / telma

Tala mikið :)

Eins og flestir sem þekkja mig vita að ég tala endalaust og stundum þá bara hreinlega get ég ekki hætt ef ég er byrjuð, þetta kemur fyrir mig núna oftar ég hreinlega veit ekki afhverju ég tala svona mikið og stundum líka um tilgangslausa hluti já allavega lenti í því í gær að vera með Kristínu Lind og kallinum hennar á djamminu og mins bara babblaði endalaust heheeh úpps sorry þið sem hafið lent í babblinu mínu en þið þurfið allavega ekki að búa með mér eins og greyið Helgi lendir bara í svona babbl samræðum sirka einu sinni á dag heheheh en já þetta var samt í gær ótrúlega gaman frábært að ein af gyðjunum kom í heimsókn :) en segi þetta fínt í bili er byrjuð að babbla aftur hehe bæbæ

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 16:26:42 / telma

Komin með vinnu :)

Ég fékk vinnu, ég byrjaði að vinna núna á mán. á leikskóla sem heitir Síðusel, það er ótrúlega frábært, frábært starfsfólk sem ég er að vinna með og skemmtilegar krakkar algjörar dúllur svo þetta er loksins allt að ganga upp hérna hjá okkur :)  ég er svona pínu þreytt eftir að byrja vinna, það tekur mann smá tíma að komast í svona vinnustuð eftir að maður er búinn að vera í löngu fríi. en það kemur hehehe en já segi þetta fínt í bili er farin að þrífa bless bless ykkar húsmóðir aldarinnar hahhaaha

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 13:10:34 / telma

Þrif dagur í dag

Já ég var mjög dugleg og vaknaði kl.9:30 í morgun og byrjaði að þrífa alla íbúðina, byrjaði að sópa og skúra, þurrka af, þrífa klósettið og vaskinn inná baði og svo setja í þvottavél er mins ekki orðin heimilsleg heheheheheheh svo er amma og afi hans Helga að koma í heimsókn til okkar í dag veit ekki hvort þau ætla að gista, svo kemur mútta í kvöld og hún ætlar að gista og vera hérna framm á verslunarmannahelgina, sem er algjört æði þá hefur maður eitthvað að gera annað en að hanga og bíða eftir að maður fái vinnu. en segi þetta svona fínt í bili. Kv. Telma.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 14:17:14 / telma

Ekki mikið að gerast

Ég veit ekki hvort ég eigi að halda áfram að blogga, það les hvort eðer enginn bloggið né kommentar svo er ég svo kunnáttulaus á tölvur heheh en mér finnst gaman að babbla á netinu svo ég ætla að halda áfram og reyna gera eitthvað sniðugt 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 19:52:11 / telma

Komin á klakann :(

Já það er víst ég er komin heim frá mallorca ekki mikð stuð því það er rigning og ömurlegt veður. en samt svona pínu fínt að komast í rúm sem er þægilegt og gott að sofa í : ) en já smá til mömmu ef hún nær að sjá þetta ( kann ekki á þvottavélina ertu til í að skrifa hvernig hún virkar :) hvernig stillingarnar eru :) hlakka svo til að sjá ykkur eftir viku ) en ég segi þetta svona gott í bili er farin að fá mér að borða :) Adios amigos

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 16:21:39 / telma

Mallorca

Jibbý loksins komið að þessu ég er að fara á morgun til mallorca í mánuð mikið búin að hlakka til þess:lol: ég segi bara við þá sem ég mun ekki hitta í lanagn tíma bless bless og sjáumst seinna ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 17:49:11 / telma

Það er svo leiðinlegt að hanga einn heima

Ég er atvinnulaus því ég er að fara út til Mallorca í mánuð eftir viku og þessa viku er ég heima sofandi sem var fínt í byrjun en núna langar manni að gera eitthvað annað en maður verður bara latari og latari því meira sem maður sefur og gerir ekki neitt þetta er að verða að vítahring:^) ég hlakka bara til að fara út og vera með Helga og fjölskyldunni hans í sólinni í mánuð :lol: svo flytja norður 10 dögum eftir að við komum heim frá Mallorca jábbs mikið að gerast á næstunni en ekkert að gerast þessa vikuna :| jebbs segi þetta fínt í bili (Kristján muna að kommenta ;) ) Kv Telma 

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 15:02:14 / telma

Frábært kvöld :)

Útskriftar dagurinn minn var æðislegur útskriftin sjálf var nú ekkert voða skemmtileg fullt af ræðum og svol. en kvöldið var frábært. Ég, mamma og helgi komum kl.19.30 á sólon svo byrjuðu gestirnar að koma upp úr 20. það mættu mjö margir sem var algjört æði. Ég fékk mjög mikið af flottum pökkum og mikið af pening. Ég á svo æðislegan frænda sem hringdi í Tryggva vin sinn sem er atvinnuljósmyndari, hann kom í einum grænum hvelli og byrjaði að taka myndir af skvísunni og gestunum svo kom magni að spila hann spilaði fyrir mig og gestina mína í klukkutíma áður en öðrum var hleypt upp þetta var æði pæði mikið drukkið, dansað og skemmt sér konunglega. Vil ég þakka öllum þeim gestum sem komu þið eruð algjör æði :) Hlakka til að halda svona veislu einhvern tímann seinna kv. Telma

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 20:49:01 / telma

Útskrift 24. Maí

Já ég mun útskrifast þann 24 mai :lol: loksins er komið að því ég get varla beðið eftir deginum heheh ég náði öllu, þarf ekki að taka endurtektapróf svo ég er bara að slappa af og bíða eftir deginum 8) en svo fer ég og Helgi tveim vikum eftir útskrift til Mallorca með fjölskyldunni hans Helga sem verður alveg frábært við verðum þar í mánuð ég veit ekki hvernig ég á eftir að verða eftir mánaðardvöl í miklum hita hehehe en já það er mikið að gerast hjá mér framundan. Svo nottla flutningurinn til Akureyrar :D Ég segi þetta gott í bili  bless bless og ÁFRAM SILVIA Í EUROVISION:lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3